★★★★★
Ég er sennilega fyrst og fremst fórnarlamb eigin heimsku en tölvuþrjótar komu einnig við sögu og skyndilega var síminn minn fullur af alls kyns forritum og varla nothæfur. Ég kom við í Icephone og var afar vel tekið. Síminn var lagaður á meðan ég beið. Ungur maður sem greinilega kunni til verka sýndi mér það sem hann var að gera og tryggði þannig að ekki færi út eitthvað sem hefði gildi fyrir mig. Í stuttu máli einstök þjónusta sem var innt af hendi með fagmennsku og ljúfmannlegri framkomu. Takk fyrir mig.
Ásgeir Valur Snorrason
Google umsögn
★★★★★
Búið að vera vandræði með usb-c tengið á símanum í langan tíma. Taldi mig vera búinn að hreinsa kuskið sem safnast þar reglulega. Kíkti með símann til fagmannanna í Kringlunni og þau löguðu tengið á núll einni.
Arnar Sigurjonsson
Google umsögn
★★★★★
Þurfti að láta skipta um skjá á símanum mínum. Það tók tvo tíma og hann er eins og nýr. Mæli mjög mikið með!!
Hjördis Kristjánsdóttir
Google umsögn
★★★
líður eins og ég hafi verið scammed með þessu "skjárinn brotnar" dæmi.
15 þúsund varð að 38 þúsund.
Þeas ef þú ætlar að láta skipta um batterí þá skaltu búast við að borga 50% af skjáskiptum.
En mjög snögg þjónusta en bara ruglandi verð.
Hugi Hólm Guðbjörnsson
Google umsögn
★★★★★
Frábær þjónusta. Síminn tekinn í gegn á örfáum mínútum.
Guðmundur Stefán Gunnarsson
Google umsögn